Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1107/2015

Nr. 1107/2015 27. nóvember 2015

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsagnir Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 15. desember 2018:

  1. Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf.
  2. ePóstur ehf.
  3. Fraktmiðlun ehf.
  4. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús ohf.
  5. Hilda ehf.
  6. Samskipti ehf.
  7. Tern Systems ehf.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 27. nóvember 2015.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. desember 2015