Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1177/2016

Nr. 1177/2016 6. desember 2016

REGLUGERÐ
um gildistöku og breytingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012, frá 12. desember 2012, um kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 26g í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 115/2013, frá 14. júní 2013, um breytingu á II. viðauka (Tækni­legar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012, frá 12. desember 2012, um kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6g, 10, 26h og 33 í IV. kafla í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ings­ins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 frá 25. ágúst 2015 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straum­festu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestur og lampa fyrir slíkar ljósaperur og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/55/EB og reglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun stefnu­virkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37/2013, 27. júní 2013, bls. 197.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 105.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. desember 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2016