Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1070/2016

Nr. 1070/2016 23. nóvember 2016

GJALDSKRÁ
Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.

Gjaldskrá fyrir hafnir Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er sett samkvæmt heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003.

Við ákvörðun hafnagjalda skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969. Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnasjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnanna og njóta þjón­ustu þeirra.

Hafnagjöld:

Lestargjöld: 11,65 kr. á mælieiningu.

Af öllum skipum skal greiða lestargjald 11,65 kr. á mælieiningu en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði að jafnaði.

Bryggjugjöld: 5,83 kr. á mælieiningu fyrir hverjar byrjaðar 24 klst.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og bátum undir 100 brt sem mánaðargjald.
Minni bátar yfir 20 brt greiða kr. 8.409 fyrir hvern mánuð.
Bátar milli 10 brt og allt að 20 brt greiða kr. 5.645 fyrir hvern mánuð.
Bátar undir 10 brt greiða kr. 4.675 fyrir hvern mánuð.
100% álag er vegna fasts viðlegupláss.
Gjald vegna Sævars (Hríseyjarferju) bryggjugjald og lestargjald í 15 daga hvern mánuð.
Gjald vegna Sæfara (Grímseyjarferju) bryggjugjald og lestargjald í 30 daga hvern mánuð.

Önnur skip sem ekki greiða aflagjald:

Farþegagjald greitt mánaðarlega samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila s.s. hvala­skoðun/sjó­stöng, 166,50 kr. á farþega.

Vörugjöld:

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar, vegna álagningar vörugjalda.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til erlendra hafna, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.

Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðaðar skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

1. fl.: Gjald 315 kr. fyrir hvert tonn:
  Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, sement, asfalt, steinefni, áburður, úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
   
2. fl.: Gjald 371 kr. fyrir hvert tonn:
  Lýsi, fiskimjöl, fiskafóður og sjávarafurðir.
   
3. fl.: Gjald 560 kr. fyrir hvert tonn:
  Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurolíur, land­bún­aðar­afurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, áfengar drykkjarvörur og ávextir.
   
4. fl.: Gjald 1.441 kr. fyrir hvert tonn:
  Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1.-3. fl.
   
5. fl.: Aflagjald:
  Ferskur fiskur 1,60%
  Frosinn fiskur af brúttóverðmæti 0,80%
  Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaup­andi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.

Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.

 

Vatns- og rafmagnssala:

Rafmagn pr. kwst. kr. 14,45 og breytist í samræmi við gjaldskrá RARIK og Orkusölunnar.
Útleiga á rafmagnsmælum á viku 99 kr.
Kalt vatn pr. tonn 260 kr.
Vatnsgjald smábáta 372 kr.
Lágmarksgjald 2.599 kr.
Heitt vatn pr. tonn 326 kr.
Heitt vatn lágmarksgjald 3.367 kr.
Ef tenging fer fram utan reglubundins vinnutíma, greiðist útkall 5.545 kr. pr. klst.
Lágmarksútkall er 4 klst.

Móttaka skipa:

Festargjald fyrir hverja komu/brottför fyrir hvern mann er 11.325 kr. í dagvinnu. Í yfirvinnu er það 21.448 kr. Þegar skip leggur að bryggju skal a.m.k. einn starfsmaður hafnarinnar taka á móti því, en þó er heimilt að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.

Siglingavernd:

Við komu skipa, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld:

Öryggisgjald kr. 33.633.
Öryggisgæsla pr. öryggisvörð í dagvinnu kr. 5.545 pr. klst.
Öryggisgæsla pr. öryggisvörð í yfirvinnu kr. 8.108 pr. klst. 

Geymslugjald á hafnasvæði:

Hafnarbakki/vörur pr. fermetra mánaðargjald 63 kr.
Veiðarfæri og búnaður frítt í 5 daga síðan 2.402 kr. pr. sólarhring.
Geymslugjald á 20 feta gámi, mánaðargjald 1.202 kr.
Geymslugjald á 40 feta gámi, mánaðargjald 1.441 kr. 

Vigtargjald:

Almenn vigtun á lönduðum afla 132 kr. á tonn.
Flutningabílar pr. skipti 1.441 kr.
Vigtun lágmarksgjald pr. mánuð 1.280 kr.
Úrtaksgjald pr. tonn sem ekki er vigtað/frystiskip 63 kr.
Kranagjald pr. tonn 241 kr.
Útkall milli kl. 17.00 og 08.00 virka daga, svo og um helgar, greiðist sérstaklega 5.545 kr. pr. klst. Lágmarksútkall er 4 klst.

Gjöld fyrir smábáta:

Bás við flotbryggju, bátar undir 10 brt pr. mánuð 7.206 kr.
Bás við flotbryggju, bátar milli 10 brt og 20 brt pr. mánuð 8.237 kr.
Legufæragjald pr. mánuð 1.922 kr.
Uppsátursgjald pr. mánuð 1.802 kr.
Daggjald báta undir 10 brt 1–10 dagar, pr. dag 480 kr.
Daggjald báta 10–20 brt 1–10 dagar, pr. dag 535 kr.
Afsláttur ellilífeyrisþega 20%.

Sorphirðugjald:

Bátar að 10 brt á sjó pr. mánuð 674 kr.
Bátar 10–20 brt á sjó pr. mánuð 1.098 kr.
Bátar allt að 50 brt á sjó pr. mánuð 1.430 kr.
Bátar 50–100 brt pr. mánuð 2.861 kr.
Skip 100–200 brt pr. skipti 1.351 kr., þó aldrei hærra en tvöfalt gjald pr. mán.
Skip 200–500 brt pr. skipti 2.356 kr., þó aldrei hærra en tvöfalt gjald pr. mán.
Skip yfir 500 brt pr. skipti 5.549 kr., þó aldrei hærra en tvöfalt gjald pr. mán. 

Um breytingar á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar:

Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2016 sem er 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í fyrsta sinn 1. júlí 2017. Allir gjaldskrárliðir sem taka til útselds tímagjalds skulu breytast miðað við launavístölu og er viðmiðunarvísitalan 1. ágúst 2016 sem er 583,4 stig. Afla­gjald í gjaldskrá breytist ekki nema með sérstakri ákvörðun sveitarstjórnar.

Um innheimtu og greiðslu gjalda:

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

Skipstjóri, eigandi og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar vegna skipsins. Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða komið á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnanna. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Öll gjöld í þessari gjaldskrá eru án virðisaukaskatts.

Gjaldskrá þessi var samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 22. nóvember 2016.

Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2017 og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1101/2015.

Dalvíkurbyggð, 23. nóvember 2016.

Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. desember 2016