Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1080/2016

Nr. 1080/2016 22. nóvember 2016

GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Dalvíkur.

Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkur er byggð á lögum nr. 32/2004, um vatnsveitur sveitarfélaga, ásamt síðari breytingum og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.

1. gr.

Vatnsgjald.

Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftir­farandi:

  a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 4.640 kr. pr. íbúð og 170,30 kr. pr. fermetra húss.
  b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 14.250 kr. pr. eign og 187,80 kr. pr. fermetra húss.
  c) Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
  d) Álagning skv. stafliðum a, b og c skal þó aldrei vera meiri en 0,4% eða minni en 0,2% af fasteignamati allra húsa og lóða.

Vatnsgjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.

2. gr.

Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatnsgjaldið með fasteignasköttum.

3. gr.

Aukavatnsgjald.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða auka­vatnsgjald sem hér segir:

Aukavatnsgjald kr./m³
fyrstu 100.000 m³ 29,34
100.000 - 250.000 m³ 26,64
eftir 250.000 m³ 24,29

Aukavatnsgjald skal innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Dalvíkur leggur til.

Aukavatnsgjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári 1. janúar og 1. júlí ár hvert.

4. gr.

Mælaleiga.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu á tveggja mánaða fresti greiða mælagjald vegna leigu á vatns­mælum sem hér segir:

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
 að 32 mm 13,27
     40 mm 13,27
     50 mm 15,74
     80 mm 37,86
   100 mm 68,36

Mælaleiga er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári 1. janúar og 1. júlí ár hvert.

5. gr.

Heimæðagjald.

  Þvermál inntaks Inntaksgjald kr. Yfirlengd kr./m
25   mm   210.235 9.538
32   mm   303.672 9.538
40   mm   385.430 9.538
50   mm   513.907 9.538
63   mm   724.141 9.538
75   mm   1.027.813   9.538
90   mm   1.518.360   9.538

Yfirlengd reiknast af heimtaug sem er lengri en 50 metrar í lóð viðkomandi mannvirkis. Heimæðar 110 mm og víðari greiðast samkvæmt reikningi. Heimæðargjald er miðað við vísitölu bygg­ingar­kostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.

6. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds, en notandi, ef hann er annar en eigandi, ber ábyrgð á greiðslu aukavatnsgjalda og leigugjalda. Vatnsgjald og heim­æðar­gjald nýtur aðfararheimildar skv. 9. gr. laga nr. 32/2004. Vatnsgjald og heimæðargjald, ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði, nýtur lögveðsréttar í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjald­daga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfaraveði. Aukavatnsgjald og leigu­gjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 22. nóvember 2016, er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga. Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2017. Jafnframt fellur gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar nr. 1054/2015 úr gildi.

Dalvíkurbyggð, 22. nóvember 2016.

Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. desember 2016