Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 96/2016

Nr. 96/2016 22. janúar 2016

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Jemen nr. 880/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Jemen nr. 880/2015.

  1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1927 frá 26. október 2015 um fram­kvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.2.
  2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1920 frá 26. október 2015 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunar­aðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgi­skjal 2.3.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. febrúar 2016