Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 167/2018

Nr. 167/2018 1. febrúar 2018

AUGLÝSING
um breytingu á auglýsingu nr. 1094/2017 um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja.

1. gr.

Í samræmi við 16. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, með síðari breytingum og ákvæði Nice-samn­ingsins frá 15. júní 1957 um alþjóðlega flokkun vöru og þjónustu vegna skráningar vöru­merkja, með síðari breytingum, gildir eftirfarandi flokkaskrá fyrir vörur og þjónustu vegna skrán­ingar vörumerkja.

Flokkaskráin er í samræmi við 11. útgáfu alþjóðlegu skrárinnar um flokkun vöru og þjónustu við skráningu vörumerkja samkvæmt Nice-samningnum sem tók gildi 1. janúar 2017 og þær breyt­ingar sem átt hafa sér stað frá þeim tíma. Flokkaskráin er uppfærð með rafrænum hætti um hver áramót.

Flokkaskráin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Hún kemur í stað fylgiskjals sem birt var með auglýsingu nr. 1094/2017 frá 15. desember 2017. Ekki eru gerðar breytingar á texta aug­lýs­ingarinnar.

2. gr.

Auglýsing þessi gildir frá birtingu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. febrúar 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Brynhildur Pálmarsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2018