Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1243/2016

Nr. 1243/2016 22. desember 2016

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

1. gr.

6. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  1. 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: 75%: Vegna öryrkja og aldraðra, sbr. þó 8. gr.
  2. 4. tölul. 1. mgr. orðast svo: Sama rétt og aldraðir eiga þeir 60–66 ára sem njóta óskerts ellilífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins.
  3. 5. tölul. 1. mgr. falli brott.

2. gr.

Í stað tölunnar „5.“ í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar og hvarvetna annars staðar í grein­inni kemur: 4.

3. gr.

Í stað orðanna „Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2015 til og með 31. desember 2016“ í 2. málsl. 21. gr. kemur: Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. desember 2018.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, gildir frá 1. janúar 2017.

Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016