Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 792/2015

Nr. 792/2015 3. júlí 2015

REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

  a) ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  b) ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  c) ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

1. Ákvörðun ráðsins 2010/231/SSUÖ frá 26. apríl 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2009/138/SSUÖ, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2011/635/SSUÖ frá 26. september 2011 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 2.
  1.2. Ákvörðun ráðsins 2012/388/SSUÖ frá 16. júlí 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 3.
  1.3 Ákvörðun ráðsins 2012/633/SSUÖ frá 15. október 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 4.
  1.4 Ákvörðun ráðsins 2013/201/SSUÖ frá 25. apríl 2013 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 5.
  1.5 Ákvörðun ráðsins 2013/659/SSUÖ frá 15. nóvember 2013 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 6.
  1.6 Ákvörðun ráðsins 2014/270/SSUÖ frá 14. mars 2014 um breytingu á sameiginlegri afstöðu 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Líberíu, fylgiskjal 7.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/729/SSUÖ frá 20. október 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 8.
  1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/335 frá 2. mars 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 9.
  1.9 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/337 frá 2. mars 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 10.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 356/2010 frá 26. apríl 2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 11.
  2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 956/2011 frá 26. september 2011 um fram­kvæmd 1. mgr. 12. gr. og 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrar­einingum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 12.
  2.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 641/2012 frá 16. júlí 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að til­teknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 13.
  2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 943/2012 frá 15. október 2012 um framkvæmd 1. mgr. 12. gr. og 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sér­stakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrar­einingum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 14.
  2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 432/2013 frá 13. maí 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að til­teknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 15.
  2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1104/2014 frá 20. október 2014 um framkvæmd 1. mgr. 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 16.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/325 frá 2. mars 2015 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 17.
3. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 147/2003 frá 27. janúar 2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 18.
  3.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 631/2007 frá 7. júní 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 19.
  3.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1137/2010 frá 7. desember 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 20.
  3.3 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 642/2012 frá 16. júlí 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 21.
  3.4 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 941/2012 frá 15. október 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 22.
  3.5 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 431/2013 frá 13. maí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 23.
  3.6 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1153/2013 frá 15. nóvember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003, fylgiskjal 24.
  3.7 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 478/2014 frá 12. maí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 147/2003 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 25.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungu­mál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samn­ingsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa, en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 299/2010 með síðari breytingum, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 544/2011 um breyting á reglugerðum nr. 154/2009, 140/2009, 155/2009, 148/2009, 147/2009, 299/2010 og 300/2010 um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir.

Utanríkisráðuneytinu, 3. júlí 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal) 


B deild - Útgáfud.: 8. september 2015