Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 134/2016

Nr. 134/2016 17. febrúar 2016

AUGLÝSING
(VII) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Árneshreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Árneshrepps með eftir­farandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan Árneshrepps þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2015 til 31. ágúst 2016.
  b) Ákvæði 2., 4. og 8. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar falla brott.

Sveitarfélagið Skagafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Hofsóss og Sauðárkróks með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Sveitarfélagsins Skagafjarðar um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016, sam­kvæmt auglýsingu nr. 1102 frá 10. desember 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. febrúar 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 17. febrúar 2016