Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 344/2017

Nr. 344/2017 4. apríl 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

1. gr.

Við 4. mgr. A. liðar 8. gr. reglugerðarinnar bætist 2. ml. sem orðast svo:

Heimilt er þó að nota sjálfskipta bifreið við verklegt próf í C1- og D1-flokki og skal það þá gefið til kynna með tákntölu í ökuskírteini.

2. gr.

4. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á töflu í 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í dálki með fyrirsögninni „2. Bóklegt nám fyrir hvern flokk – Stundir“ í BE línu fellur talan „4“ niður.
  2. Í dálki með fyrirsögninni „2. Bóklegt nám fyrir hvern flokk – Fækkun vegna fyrra náms - Flokkur“ í C1E/D1E línu fellur „BE“ niður.
  3. Í dálki með fyrirsögninni „2. Bóklegt nám fyrir hvern flokk – Fækkun vegna fyrra náms - Stundir“ í C1E/D1E línu fellur talan „-4“ niður.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 34. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í 1. tl. 1. mgr. á milli „B-“ og „T-flokkur“ bætist við: BE-
  2. Í d-lið 3. tl. 1. mgr. fellur „BE-“ brott.

5. gr.

40. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  1. a-liður 1. tl. 1. mgr. verður svohljóðandi: B-, BE- og T-flokk.
  2. iv-liður c-liðar 1. tl. 1. mgr. verður svohljóðandi: C1E-, CE-, D1E- og DE-flokk.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 3. tl. í III. kafla I. viðauka við reglugerðina:

  1. Texti við tákntöluna 500 verður svohljóðandi: Löggilding ökukennara fyrir B- og BE-flokk.
  2. Texti við tákntöluna 525 verður svohljóðandi: Löggilding ökukennara fyrir AM-, A1-, A2-, A-, B- og BE-flokk.

7. gr.

Í IV. viðauka við reglugerðina undir 2. tl. fellur 13. mgr. (8. mgr. eftir töflu) brott.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 52. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 31. mars 2017.

Jón Gunnarsson
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. apríl 2017