Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 462/2017

Nr. 462/2017 16. maí 2017

REGLUGERÐ
um veiðar á gulllaxi.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til gulllaxveiða íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Aðeins skipum sem hafa aflamark í gulllaxi er heimilt að stunda gulllaxveiðar.

2. gr.

Gulllaxveiðar eru aðeins heimilar á svæði undan Vestur- og Suðurlandi vestan 19°30,00´ V og sunnan 66°50,00´ N á dýpra vatni en 220 föðmum. Á svæði milli 19°30,00´ V og 12°00,00´ V eru veiðar jafnframt heimilar sunnan línu sem dregin er um eftirgreinda punkta:

          1. 63°19,00´ N – 19°30,00´ V
          2. 63°20,00´ N – 19°20,00´ V
          3. 63°15,00´ N – 19°00,00´ V
          4. 63°11,00´ N – 18°10,00´ V
          5. 63°11,00´ N – 17°53,00´ V
          6. 63°16,00´ N – 17°10,00´ V
          7. 63°20,00´ N – 16°35,00´ V
          8. 63°22,00´ N – 16°29,00´ V
          9. 63°24,00´ N – 16°00,00´ V
          10. 63°28,00´ N – 15°41,00´ V
          11. 63°29,00´ N – 15°30,00´ V
          12. 63°34,00´ N – 15°00,00´ V
          13. 63°35,00´ N – 14°42,00´ V
          14. 63°45,00´ N – 14°12,00´ V
          15. 63°49,00´ N – 14°00,00´ V
          16. 63°58,00´ N – 13°33,00´ V
          17. 64°01,00´ N – 13°10,00´ V
          18. 64°30,00´ N – 12°00,00´ V

Ofangreind heimild veitir skipinu aðeins rétt til að stunda veiðar á þeim svæðum sem því er heimilt að stunda veiðar með botn- og flotvörpu, samkvæmt 5. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands, með þeim takmörkunum sem slíkum veiðum eru settar í sérstökum reglugerðum og skyndilokunum.

3. gr.

Gulllaxsýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stk. af gulllaxi, sem valin eru af handahófi. Gæta skal þess að sýni sé tekið í öllum tilkynningaskyldureitum þar sem skipið stundar veiðar. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna í Reykjavík, þegar að lokinni veiðiferð.

4. gr.

Lágmarksstærð möskva í þeirri vörpu sem notuð er til gulllaxveiða skal vera 80 mm miðað við mælingu með hnútum (heilmöskvi), en 40 mm í poka.

5. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti opinberra mála. Brot varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, ásamt síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, ásamt síðari breytingum. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 717/2000, um veiðar á gulllaxi, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. maí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2017