Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 885/2016

Nr. 885/2016 13. október 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.

1. gr.

Innleiðing.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem orðist svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/4 frá 5. janúar 2016 um breytingu á reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 að því er varðar grunnkröfur um umhverfis­vernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2016 frá 18. mars 2016. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 721.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 13. október 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 28. október 2016