Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1/2016

Nr. 1/2016 4. janúar 2016

REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „74.696 kr.“ kemur: 81.942 kr.
  2. Í stað orðanna „daggjöldum á dvalarheimili eins og þau eru ákveðin af ráðherra, sbr. 2. gr.“ kemur: að hámarki 384.740 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir frá 1. janúar 2016. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1217/2014, um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

Velferðarráðuneytinu, 4. janúar 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2016