Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 851/2015

Nr. 851/2015 9. júlí 2015

REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Írak.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

  a) ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  b) ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  c) ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Sameiginleg afstaða ráðsins 2003/495/SSUÖ frá 7. júlí 2003 um Írak og niðurfellingu sameigin­legrar afstöðu 96/741/SSUÖ og 2002/599/SSUÖ, fylgiskjal 1.
  1.1 Sameiginleg afstaða ráðsins 2003/735/SSUÖ frá 13. október 2003 um breytingu á sameiginlegri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 2.
  1.2 Sameiginleg afstaða ráðsins 2004/553/SSUÖ frá 19. júlí 2004 um breytingu á sameigin­legri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 3.
  1.3 Sameiginleg afstaða ráðsins 2008/186/SSUÖ frá 3. mars 2008 um breytingu á sameigin­legri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 4.
  1.4 Ákvörðun ráðsins 2011/100/SSUÖ frá 14. febrúar 2011 um breytingu á sameiginlegri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 5.
  1.5 Ákvörðun ráðsins 2012/812/SSUÖ frá 20. desember 2012 um breytingu á sameiginlegri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 6.
  1.6 Ákvörðun ráðsins 2014/484/SSUÖ frá 22. júlí 2014 um breytingu á sameiginlegri afstöðu 2003/495/SSUÖ um Írak, fylgiskjal 7.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 frá 7. júlí 2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjármálalegum tengslum við Írak og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2465/96, fylgiskjal 8.
  2.1 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1799/2003 frá 13. október 2003 um breytingu á reglugerð ráðs­ins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjárhags­legum tengslum við Írak, fylgiskjal 9.
  2.2 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2119/2003 frá 2. desember 2003 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efna­hags­legum og fjármálalegum tengslum við Írak og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2465/96, fylgiskjal 10.
  2.3 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 924/2004 frá 29. apríl 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 11.
  2.4 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 979/2004 frá 14. maí 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 12.
  2.5 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1086/2004 frá 9. júní 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 13.
  2.6 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1412/2004 frá 3. ágúst 2004 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 14.
  2.7 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1087/2005 frá 8. júlí 2005 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 15.
  2.8 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1286/2005 frá 3. ágúst 2005 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 16.
  2.9 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 785/2006 frá 23. maí 2006 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahags­legum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 17.
  2.10 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 195/2008 frá 3. mars 2008 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjárhags­legum tengslum við Írak, fylgiskjal 18.
  2.11 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 131/2011 frá 14. febrúar 2011 um breytingu á reglugerð ráðs­ins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjár­mála­legum tengslum við Írak, fylgiskjal 19.
  2.12 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 88/2012 frá 1. febrúar 2012 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar tak­markanir á efnahagslegum og fjármálalegum tengslum við Írak, fylgiskjal 20.
  2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 85/2013 frá 31. janúar 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjárhagslegum tengslum við Írak, fylgiskjal 21.
  2.14 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 791/2014 frá 22. júlí 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1210/2003 um tilteknar, sértækar takmarkanir á efnahagslegum og fjárhags­legum tengslum við Írak, fylgiskjal 22.
3. Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3541/92 frá 7. desember 1992 um bann við því að uppfylla íraskar kröfur vegna samninga og viðskipta sem ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 661 (1990) og tengdar ályktanir taka til, fylgiskjal 23.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­festingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og fryst­ingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungu­­mál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sam­eiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samn­ings­ins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Írak nr. 141/2009, ásamt síðari breytingum, sbr. reglugerð nr. 301/2010 um breyting á reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Írak nr. 141/2009.

Utanríkisráðuneytinu, 9. júlí 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 25. september 2015