Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 226/2016

Nr. 226/2016 29. febrúar 2016

REGLUGERÐ
um gjaldtöku embættis landlæknis fyrir úttektir og staðfestingar á að faglegar lágmarkskröfur séu uppfylltar og úrvinnslu og afhendingu upplýsinga úr heilbrigðisskrám.

I. KAFLI

Úttektir og staðfestingar.

1. gr.

Staðfesting á rekstri heilbrigðisþjónustu.

Embætti landlæknis innheimtir gjald fyrir úttekt og staðfestingu á því að faglegar kröfur séu uppfylltar og önnur skilyrði í heilbrigðislöggjöf, sbr. 3. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 7. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu, samkvæmt reglugerð um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur, nr. 786/2007, samkvæmt liðum a-f:

  a. Stofurekstur, umsýslugjald á hverja stofu heilbrigðisstarfsmanns 9.735 kr.
    Fyrir úttektir skal greitt samkvæmt reikningi sem embætti land­læknis gefur út að lokinni úttekt ásamt tímaskýrslu um fjölda vinnustunda. Gjaldið verður þó eigi hærra en því sem nemur að hámarki:  
  b. Skurðstofurekstur utan sjúkrahúss   70.400 kr.
  c. Hjúkrunarheimili 176.000 kr.
  d. Heilsugæslustöðvar 176.000 kr.
  e. Umdæmissjúkrahús 528.000 kr.
  f. Sérgreinasjúkrahús 880.000 kr.

II. KAFLI

Úrvinnsla og afhending upplýsinga úr heilbrigðisskrám.

2. gr.

Sérvinnslur.

Embætti landlæknis innheimtir gjald sem nemur kostnaði við úrvinnslu og afhendingu upplýsinga úr heilbrigðisskrám samkvæmt reglugerð um heilbrigðisskrár nr. 548/2008 og er gjald fyrir hvern klukkutíma 9.055 kr.

III. KAFLI

Ýmis ákvæði.

3. gr.

Ferðakostnaður.

Þegar erindi sem embætti landlæknis tekur að sér útheimtir ferðalög af hálfu starfsmanna þá innheimtir embættið ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

4. gr.

Innheimta.

Eindagi gjalda samkvæmt reglugerð þessari er 45 dögum eftir útgáfu reiknings. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.

5. gr.

Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimildum í 6. mgr. 6. gr., 1. mgr. 7. gr. og 7. mgr. 8. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu og 6. mgr. 26. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 29. febrúar 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. mars 2016