Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1239/2015

Nr. 1239/2015 22. desember 2015

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2016.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekju­skatts­stofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörð­unum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2016 verður 22,68% af tekjuskattsstofni að 4.032.420 kr., 23,9% af tekjuskattsstofni frá 4.032.421 kr. að 10.043.880 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 10.043.881 kr. Meðalútsvar á árinu 2016 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,45%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2016 verður því 37,13% af tekjuskattsstofni að 4.032.420 kr., 38,35% af tekjuskattsstofni frá 4.032.421 kr. að 10.043.880 kr. og 46,25% af tekjuskattsstofni frá 10.043.881 kr.

Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 10.043.880 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 23,9% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 10.043.880 kr., þó reiknast 23,9% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 3.005.730 kr. við þessar aðstæður.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2016 vera 623.042 krónur, eða 51.920 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2015. 

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Ása Ögmundsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2015