1. gr.
2. mgr. 3. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Þjónusta í dvalarrými er sólarhringsþjónusta og er daggjald greitt fyrir hana þá sólarhringa sem sjúkratryggður nýtur hennar. Þjónustuna skal þó veita sem jafnast yfir árið. Daggjald skal jafnframt greitt daginn sem sjúkratryggður kemur til dvalar á heimili í fyrsta skipti eða eftir langa fjarveru (45 daga eða fleiri).
2. gr.
Liður E9 í töflu 4. mgr. 3. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Nr. |
|
Fjöldi dvalarrýma |
Daggjald |
Skýringar |
E9 |
Dalbær, Dalvík |
11 |
12.636 kr. |
7) |
Skýringar við töflu 4. mgr. 3. gr. orðist svo:
6) Heildarfjöldi dvalarrýma var alls 351 frá og með 8. mars 2016, en 349 frá og með 14. mars 2016 og 347 frá og með 15. mars 2016, samanber skýringar við lið E9.
Við lið E9 í töflu 4. mgr. 3. gr. bætist ný skýring, svohljóðandi:
7) Dalbær, Dalvík. Fækkun dvalarrýma úr 15 í 13 frá og með 14. mars 2016 og úr 13 í 11 frá og með 15. mars 2016.
3. gr.
2. mgr. 4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Þjónusta í hjúkrunarrými er sólarhringsþjónusta og er daggjald greitt fyrir hana þá sólarhringa sem sjúkratryggður nýtur hennar. Þjónustuna skal þó veita sem jafnast yfir árið. Daggjald skal jafnframt greitt daginn sem sjúkratryggður kemur til dvalar á heimili í fyrsta skipti eða eftir langa fjarveru (45 daga eða fleiri).
4. gr.
Liður E7 í töflu 5. mgr. 4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:
Nr. |
|
Fjöldi hjúkrunarrýma |
Hjúkrunar-þjónusta |
Daggjald þar af dvalar-kostnaður 12.636 kr. |
Skýringar |
E7 |
Dalbær, Dalvík |
27 |
14.009 kr. |
26.645 kr. |
11) |
Skýringar við töflu 5. mgr. 4. gr. orðist svo:
10) Heildarfjöldi hjúkrunarrýma var alls 2.175,5 frá og með 8. mars 2016, en 2.177,5 frá og með 15. mars 2016, samanber skýringar við lið E7.
Við lið E7 í töflu 5. mgr. 4. gr. bætist ný skýring, svohljóðandi:
11) Dalbær, Dalvík. Hjúkrunarrýmum fjölgar úr 25 í 27 frá og með 15. mars 2016.
5. gr.
Breytingar eru gerðar á liðum A10 og A19 í töflu 3. mgr. 5. gr. gjaldskrárinnar og við bætist nýr liður sem verður C8. Liðir A10, A19 og C8 í töflu 3. mgr. 5. gr. orðist svo:
Nr. |
Tegund dagdvalar |
|
Fjöldi dagdvalarrýma |
Daggjald |
Skýringar |
A10 |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Eir, Reykjavík |
42 |
14.170 kr. |
|
A19 |
Almenn dagdvöl |
Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík |
50 |
6.492 kr. |
2) |
C8 |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Brákarhlíð, Borgarnesi |
1 |
14.170 kr. |
3) |
Við lið A19 í töflu 3. mgr. 5. gr. bætist ný skýring, svohljóðandi:
2) Þorrasel, Reykjavík. Almennum dagdvalarrýmum fjölgar um 10 og eru alls 50 frá og með 8. apríl 2016.
Við lið C8 í töflu 3. mgr. 5. gr. bætist ný skýring, svohljóðandi:
3) Brákarhlíð, Borgarnesi. Dagdvalarrými fyrir heilabilaða frá og með 6. maí til og með 31. ágúst 2016.
Við töflu 3. mgr. 5. gr., fyrir aftan samtölu fjölda dagdvalarrýma, bætist ný skýring, svohljóðandi:
4) Heildarfjöldi dagdvalarrýma er alls 713 frá og með 8. apríl 2016 og 714 frá og með 6. maí 2016.
6. gr.
Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 145/2016 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna dvalar í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvalarrýmum á stofnunum sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2016 og sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Auglýsingin öðlast þegar gildi.
Sjúkratryggingum Íslands, 17. maí 2016.
Steingrímur Ari Arason.
Katrín E. Hjörleifsdóttir.
|