Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 465/2018

Nr. 465/2018 7. maí 2018

AUGLÝSING
um gjald vegna þátttöku á vigtarmannanámskeiðum í Reykjavík.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtar­manna. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði við námskeiðin og framkvæmd prófsins.

Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.

Námskeiðin skiptast í almennt námskeið og endurmenntunarnámskeið. Námskeiðsgjald og lög­gildingar­gjald fyrir námskeiðin sjást í meðfylgjandi töflu:

Námskeið Námskeiðsgjald, kr. Löggildingargjald, kr. Samtals, kr.
Almennt 88.500 8.300 96.800
Endurmenntun 37.200 8.300 45.500

Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dag­peningum, ferðakostnaði og ferðatíma.

Auglýsing þessi tekur þegar gildi og jafnframt er úr gildi fallin auglýsing nr. 376/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. maí 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Ólafur Egill Jónsson.

 


B deild - Útgáfud.: 11. maí 2018