Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 52/2017

Nr. 52/2017 19. janúar 2017

GJALDSKRÁ
Sjúkratrygginga Íslands fyrir dagdvöl aldraðra á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2017 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Gildissvið.

Gjaldskráin tekur til daggjalda fyrir þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2017 og eru án samnings við Sjúkra­tryggingar Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður, sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.

Dagdvalarrými er stuðningsúrræði fyrir aldraða, sbr. lög nr. 125/1999 um málefni aldraðra.

Gjaldskráin kveður á um daggjöld skv. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

2. gr.

Daggjöld vegna þjónustu í dagdvalarrýmum.

Daggjald fyrir þjónustu í dagdvalarrými er greitt eftir hvern almanaksmánuð.

Tilgreindur fjöldi dagdvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkra­trygg­inga Íslands tekur til. Miðað er við að þjónusta í dagdvalarrými sé í boði 250 daga ársins og í samræmi við áætlun sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt.

Miðað er við að ein koma í dagdvalarrými vari í a.m.k. 6 klst. á dag. Innifalið í daggjöldum dag­dvalar­rýma er nauðsynlegur flutningskostnaður og hvers konar þjónusta sem látin er í té á stofn­unum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heil­brigðis­þjónustu.

Daggjöld fyrir dagdvalarrými skulu vera sem hér segir:

Nr. Tegund dagdvalar   Fjöldi dagdvalarrýma Daggjald
  A. Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins    
A1 Almenn dagdvöl Hrafnista, Hafnarfirði 26 6.698 kr.
A2 Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Hrafnista, Reykjavík 30 18.233 kr.
A3 Almenn dagdvöl Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi 30 6.698 kr.
A4 Dagdvöl fyrir heilabilaða Hlíðarbær, dagdvöl, Reykjavík 22 14.599 kr.
A5 Dagdvöl fyrir heilabilaða Roðasalir, Kópavogi 20 9.535 kr.
A6 Almenn dagdvöl Sunnuhlíð, Kópavogi 14 6.698 kr.
A7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Sunnuhlíð, Kópavogi 6 14.599 kr.
A8 Dagdvöl fyrir heilabilaða Vitatorg, dagdvöl, Reykjavík 18 14.599 kr.
A9 Almenn dagdvöl Hlaðhamrar, dagdvöl, Mosfellsbæ 9 6.698 kr.
A10 Dagdvöl fyrir heilabilaða Eir, Reykjavík 48 14.599 kr.
A11 Almenn dagdvöl Dagdvöl Seltjarnarness 9 6.698 kr.
A12 Almenn sérhæfð dagdvöl MS-setrið, dagdvöl, Reykjavík 40 13.344 kr.
A13 Almenn sérhæfð dagdvöl Múlabær, dagdvöl, Reykjavík 56 9.535 kr.
A14 Dagdvöl fyrir heilabilaða Fríðuhús, dagdvöl, Reykjavík 18 14.599 kr.
A15 Dagdvöl fyrir heilabilaða Drafnarhús, dagdvöl, Hafnarfirði 22 14.599 kr.
A16 Dagdvöl fyrir heilabilaða Maríuhús, dagdvöl, Reykjavík 22 14.599 kr.
A17 Almenn dagdvöl Sólvangur, Hafnafirði 8 6.698 kr.
A18 Almenn dagdvöl Ísafold, Garðabæ 16 6.698 kr.
A19 Almenn dagdvöl Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík 50 6.698 kr.
       
  B. Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja    
B1 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 15 6.698 kr.
B2 Dagdvöl fyrir heilabilaða Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 11 14.599 kr.
B3 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Grindavík 5 6.698 kr.
       
  C. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands    
C1 Almenn dagdvöl Barmahlíð, Reykhólum 2 6.698 kr.
C2 Almenn dagdvöl Dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi 2 6.698 kr.
C3 Almenn dagdvöl Jaðar, Ólafsvík 2 6.698 kr.
C4 Almenn dagdvöl Brákarhlíð, Borgarnesi 4 6.698 kr.
C5 Almenn dagdvöl Höfði, Akranesi 20 6.698 kr.
C6 Almenn dagdvöl Fellaskjól, Grundarfirði 1 6.698 kr.
C7 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Hvammstanga 5 6.698 kr.
       
  D. Heilbrigðisumdæmi Vestfjarða    
D1 Almenn dagdvöl Hlíf, dagdvöl, Ísafirði 8 6.698 kr.
D2 Almenn dagdvöl Sunnuhlíð, dagdvöl, Suðureyri 5 6.698 kr.
       
  E. Heilbrigðisumdæmi Norðurlands    
E1 Almenn dagdvöl Hornbrekka, Ólafsfirði 6 6.698 kr.
E2 Almenn dagdvöl Hvammur, Húsavík 23 6.698 kr.
E3 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Siglufirði 7 6.698 kr.
E4 Almenn dagdvöl HSN, Blönduósi 2 6.698 kr.
E5 Almenn dagdvöl Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð 20 6.698 kr.
E6 Dagdvöl fyrir heilabilaða Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð 15 14.599 kr.
E7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Öldrunarstofnun Akureyrar, Eyjafjarðarsveit 1 14.599 kr.
E8 Almenn dagdvöl Naust, Þórshöfn 4 6.698 kr.
E9 Almenn dagdvöl Dalbær, Dalvík 14 6.698 kr.
E10 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Skagafirði 11 6.698 kr.
       
  F. Heilbrigðisumdæmi Austurlands    
F1 Almenn dagdvöl Uppsalir, Fáskrúðsfirði 2 6.698 kr.
F2 Almenn dagdvöl HSA, Neskaupstað 1 6.698 kr.
F3 Almenn dagdvöl HSA, Seyðisfirði 2 6.698 kr.
F4 Almenn dagdvöl Lagarás, Egilsstöðum 5 6.698 kr.
F5 Dagdvöl fyrir heilabilaða Lagarás, Egilsstöðum 3 14.599 kr.
F6 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Djúpavogi 4 6.698 kr.
F7 Almenn dagdvöl Dagdvalarheimilið Breiðdalsvík 5 6.698 kr.
F8 Almenn dagdvöl Sundabúð, Vopnafirði 1 6.698 kr.
       
  G. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands    
G1 Almenn dagdvöl Hraunbúðir, Vestmannaeyjum 10 6.698 kr.
G2 Almenn dagdvöl Kirkjuhvoll, Hvolsvelli 2 6.698 kr.
G3 Almenn dagdvöl Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri 1 6.698 kr.
G4 Almenn dagdvöl Lundur, Hellu 2 6.698 kr.
G5 Almenn dagdvöl Ás/Ásbyrgi, Hveragerði 5 6.698 kr.
G6 Almenn dagdvöl Árborg, dagdvöl, Selfossi 11 6.698 kr.
G7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Árborg, dagdvöl, Selfossi 10 14.599 kr.
G8 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Þorlákshöfn 8 6.698 kr.
G9 Almenn dagdvöl Hjallatún, Vík 2 6.698 kr.
G10 Almenn dagdvöl HSU, Hornafirði 7 6.698 kr.
      728  

3. gr.

Húsnæðisdaggjald.

Húsnæðisdaggjald fyrir dagdvalarrými mætir viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs þeirra. Húsnæðisdaggjald árið 2017 er kr. 338 fyrir að hámarki 30 fermetra dagdvalarrými.

Húsnæðisdaggjaldið fyrir dagdvalarrými hlutfallast í samræmi við stærð rýmisins og reiknast aldrei á stærra rými en hámarkið segir til um.

4. gr.

Greiðsluþátttaka.

Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dagdvalar fer samkvæmt 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, sbr. einnig reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

5. gr.

Rafræn samskipti og reikningsupplýsingar.

Reikningar skulu uppfylla skilyrði laga og reglna á hverjum tíma. Þeir skulu vera á því formi sem Sjúkratryggingar Íslands ákveða. Reikningar vegna kostnaðar við veitta þjónustu skulu sendir Sjúkratryggingum Íslands mánaðarlega.

Við sendingu rafrænna reikningsupplýsinga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt. Rafræn samskipti aðila og varðveisla gagna skulu fara eftir ákvæðum laga um bókhald nr. 145/1994. Rekstraraðilar bera kostnað af innskráningu upplýsinga, en ekki vegna reksturs og viðhalds RAI-gagnagrunns og þjónustukerfa Sjúkratrygginga Íslands.

Ef ekki reynist unnt að ákvarða rétt til greiðslu eða fjárhæð hennar vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að fresta greiðslu þar til úr því er bætt. Stofnunin skal gera viðkomandi heimili viðvart ef til frestunar kemur, leiðbeina um hvaða upplýsingar skortir og skora á það að veita þær innan viðhlítandi frests.

6. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sbr. síðari breytingar, og 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra og tekur til þjónustu sem veitt er eftir 1. janúar 2017. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2017 til og með 31. desember 2017, sbr. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 146/2016 með síðari breytingum.

Sjúkratryggingum Íslands, 19. janúar 2017.

Steingrímur Ari Arason.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. janúar 2017