Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1053/2015

Nr. 1053/2015 11. nóvember 2015

REGLUGERÐ
um (11.) breytingu á reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 5,50 kr. á umbúðir úr stáli, 5,30 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 3,90 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 3,20 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni og 1,30 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, öðlast gildi 1. janúar 2016.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 11. nóvember 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2015