Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 544/2016

Nr. 544/2016 3. júní 2016

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

1. málsliður 8. mgr. 5. gr. reglnanna orðast svo: Í umboði rektors hefur framkvæmdastjóri stjórn­sýslu yfirumsjón og eftirlit með sameiginlegri stjórnsýslu háskólans.

2. gr.

3. og 4. málsliður 1. mgr. 8. gr. reglnanna orðast svo: Framkvæmdastjóri stjórnsýslu leiðir sam­eigin­lega stjórnsýslu skólans í umboði rektors. Hefur hann yfirumsjón með sviðum hinnar sam­eigin­legu stjórnsýslu skólans sem eru: framkvæmda- og tæknisvið, fjármálasvið, kennslusvið, markaðs- og samskiptasvið, starfsmannasvið og vísinda- og nýsköpunarsvið.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 3. júní 2016.

Jón Atli Benediktsson.

Halldór Jónsson.


B deild - Útgáfud.: 20. júní 2016