Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 445/2016

Nr. 445/2016 26. maí 2016

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 207/2010 um gjald fyrir dvöl á sjúkrahóteli.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „kr. 1.200 á dag“ í 1. mgr. 1. tölul. kemur: 1.440 kr. á dag.
  2. Í stað orðanna „kr. 18.000 á dag“ í 2. málsl. 1. mgr. 2. tölul. kemur: 19.900 kr. á dag á tímabilinu janúar til og með apríl svo og september til og með desember og 25.870 kr. á tímabilinu maí til og með ágúst.
  3. Orðin „nr. 1079/2009“ í 1. málsl. 2. mgr. 2. tölul. falla brott.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 26. maí 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. maí 2016