Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtarmanna. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði af námskeiðum og framkvæmd prófsins.
Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram og réttindi eru veitt.
Námskeiðin skiptast í almenn námskeið og endurmenntunarnámskeið. Námskeiðsgjald og löggildingargjald fyrir námskeiðin er í meðfylgjandi töflu:
Námskeið |
Námskeiðs- gjald |
Löggildingar- gjald |
Samtals |
Almennt |
67.900 kr. |
8.300 kr. |
76.200 kr. |
Endurmenntun |
28.500 kr. |
8.300 kr. |
36.800 kr. |
Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, leigu á aðstöðu og aðbúnaði, ferðakostnaði og ferðatíma eftir því sem við á.
Auglýsing þessi tekur þegar gildi og jafnframt er úr gildi fallin auglýsing nr. 447/2014.
Innanríkisráðuneytinu, 22. apríl 2016.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|