1. gr. Af húsdýrum og gæludýrum skal Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd heilbrigðissamþykktar nr. 634/2012 um húsdýrahald og almennt gæludýrahald í Hafnarfirði. 2. gr. Af leyfum sem veitt eru samkvæmt ákvæðum samþykktarinnar skal innheimta eitt tímagjald eins og það er á hverjum tíma samkvæmt gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. 3. gr. Heimilt er að innheimta eftirlitsgjald vegna almenns eftirlits samkvæmt gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. 4. gr. Vegna beitingar þvingunarúrræða skv. VI. kafla laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarna og V. kafla laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs skal innheimta fyrir kostnaði eins og um aukin eftirlitsverkefni sé að ræða. 5. gr. Af húsdýri sem handsamað er og flutt í gæludýrageymslu samkvæmt 5. gr. samþykktarinnar skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. 6. gr. Við afhendingu handsamaðs dýrs ber heilbrigðiseftirliti að innheimta gjald; eitt og hálft tímagjald samkvæmt gildandi gjaldskrá fyrir heilbrigðiseftirlit. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi dýrs. Svo og þjónustu dýralæknis ef með þarf samkvæmt gjaldskrá viðkomandi dýralæknis. 7. gr. Með vísun til heimildar í ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, er gjaldskrá þessi samþykkt af bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar þann 24. október 2012 og öðlast gildi við birtingu. Garðabæ, 10. desember 2012. | F.h. heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. | Guðmundur H. Einarsson framkvæmdastjóri. |
|