Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 887/2015

Nr. 887/2015 16. september 2015

REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Líbyu.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópu­sambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samnings­ins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2011/137/SSUÖ frá 28. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2011/178/SSUÖ frá 23. mars 2011 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 2
  1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/236/SSUÖ frá 12. apríl 2011 um framkvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 3.
  1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/300/SSUÖ frá 23. maí 2011 um framkvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 4.
  1.4 Ákvörðun ráðsins 2011/332/SSUÖ frá 7. júní 2011 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 5.
  1.5 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/345/SSUÖ frá 16. júní 2011 um framkvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 6.
  1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/500/SSUÖ frá 10. ágúst 2011 um framkvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 7.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/521/SSUÖ frá 1. september 2011 um framkvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 8.
  1.8 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2011/543/SSUÖ frá 15. september 2011 um fram­kvæmd ákvörðunar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 9.
  1.9 Ákvörðun ráðsins 2011/625/SSUÖ frá 22. september 2011 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 10.
  1.10 Ákvörðun ráðsins 2011/729/SSUÖ frá 10. nóvember 2011 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 11.
  1.11 Ákvörðun ráðsins 2011/867/SSUÖ frá 20. desember 2011 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 12.
  1.12 Ákvörðun ráðsins 2013/45/SSUÖ frá 22. janúar 2013 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 13.
  1.13 Ákvörðun ráðsins 2013/182/SSUÖ frá 22. apríl 2013 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 14.
  1.14 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/41/SSUÖ frá 28. janúar 2014 um framkvæmd ákvörð­unar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 15.
  1.15 Ákvörðun ráðsins 2014/380/SSUÖ frá 23. júní 2014 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 16.
  1.16 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/487/SSUÖ frá 22. júlí 2014 um framkvæmd ákvörð­unar 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 17.
  1.17 Ákvörðun ráðsins 2014/727/SSUÖ frá 20. október 2014 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 18.
  1.18 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/382 frá 6. mars 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 19.
  1.19 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/818 frá 26. maí 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/137/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 20.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 204/2011 frá 2. mars 2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 21.
  2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 296/2011 frá 25. mars 2011 um breytingu á reglugerð ráðs­ins (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 22.
  2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 360/2011 frá 12. apríl 2011 um framkvæmd á 1. og 2. mgr. 16. gr. reglugerðar ráðsins (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 23.
  2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 502/2011 frá 23. maí 2011 um framkvæmd á reglugerð ráðsins (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 24.
  2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 572/2011 frá 16. júní 2011 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 25.
  2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 573/2011 frá 16. júní 2011 um framkvæmd á 2. mgr. 16. gr. reglugerðar ráðsins (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástands­ins í Líbyu, fylgiskjal 26.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 804/2011 frá 10. ágúst 2011 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 27.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 872/2011 frá 1. september 2011 um fram­kvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 28.
  2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 925/2011 frá 15. september 2011 um fram­kvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir i ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 29.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 941/2011 frá 22. september 2011 um fram­kvæmd 2. og 5. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 30.
  2.10 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 965/2011 frá 28. september 2011 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 31.
  2.11 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1139/2011 frá 10. nóvember 2011 um breytingu á reglu­gerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 32.
  2.12 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1360/2011 frá 20. desember 2011 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 33.
  2.13 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 50/2013 frá 22. janúar 2013 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 34.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 364/2013 frá 22. apríl 2013 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 35.
  2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 488/2013 frá 27. maí 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 36.
  2.16 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 45/2014 frá 20. janúar 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 37.
  2.17 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 74/2014 frá 28. janúar 2014 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 38.
  2.18 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 689/2014 frá 23. júní 2014 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 39.
  2.19 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 690/2014 frá 23. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 40.
  2.20 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 792/2014 frá 22. júlí 2014 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 41.
  2.21 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1102/2014 frá 20. október 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 42.
  2.22 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1103/2014 frá 20. október 2014 um fram­kvæmd 1. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 43.
  2.23 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 2015/374 frá 6. mars 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 44.
  2.24 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/376 frá 6. mars 2015 um framkvæmd 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 45.
  2.25 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/813 frá 26. maí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 46.
  2.26 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/814 frá 26. maí 2015 um framkvæmd 1. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbyu, fylgiskjal 47.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef öryggisráðs Samein­uðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breyt­ingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­festingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og fryst­ingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  a) ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungu­­mál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins („EB“, „ESB“, „Bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórn­völd, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  b) ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  c) tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samn­ingsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  d) tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  e) tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  f) vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mann­úðar­ástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildis­töku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi e-liður 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir sem varða Búrma/Mýanmar, Egyptaland, Gíneu, Íran, Líbyu og Sýrland nr. 870/2011.

Utanríkisráðuneytinu, 16. september 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 7. október 2015