Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 884/2015

Nr. 884/2015 6. október 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1126/2014 um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

1. gr.

4. gr. reglugerðar nr. 1126/2014 breytist þannig að við bætist eftirfarandi stafliður, b-liður:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 716/2014 frá 27. júní 2014 um fyrstu sameiginlegu áætlunina (Pilot Common Project) til stuðnings framkvæmdar á evrópsku mynsturáætluninni um rekstrar­stjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2015 frá 20. mars 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, bls. 302.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 6. október 2015.

F. h. r.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 7. október 2015