Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 124/2016

Nr. 124/2016 28. janúar 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1043/2008 um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugverja.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

I. viðauki við reglugerð þessa, sem telst hluti hennar, hefur að geyma ákvæði varðandi flutn­inga­flug á flugvél, að undanskildu því flugi sem fellur undir II. og III. viðauka við reglugerð þessa. I. viðauki samanstendur af FTL-kafla, fartíma og vinnutímamörk og reglur um hvíldartíma, í III. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 965/2012, sbr. reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) nr. 83/2014.

II. viðauki við reglugerð þessa, sem telst hluti hennar, hefur að geyma sértæk ákvæði varðandi:

  a) Einn flugmann í áhöfn flugvélar í flutningaflugi og verkflugi.
  b) Sjúkraflug flugvélar.
  c) Verkflug flugvélar.
  d) Kennsluflug flugvélar.

III. viðauki við reglugerð þessa, sem telst hluti hennar, hefur að geyma sértæk ákvæði varðandi:

  a) Flutningaflug þyrlu, þ.m.t. sjúkraflug með þyrlu.
  b) Verkflug, þ.m.t. leitar- og björgunarflug með þyrlu.
  c) Kennsluflug með þyrlu.

2. gr.

1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um meðferð undanþágubeiðna vegna ákvæða í viðauka I er nánar kveðið á í 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sem innleidd var með reglugerð nr. 812/2012 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu.

3. gr.

Með reglugerð þessari breytist efni I. viðauka þannig að í stað ákvæða Q-kafla í III. viðauka við reglugerð ráðsins nr. 3922/91 um samræmingu á tæknikröfum og stjórnsýslumeðferð á sviði flug­mála með síðari breytingum, samanstendur I. viðauki af FTL-kafla, fartíma og vinnutímamörk og reglur um hvíldartíma, í III. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 965/2012, sbr. reglu­gerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 83/2014.

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 37. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Reglugerðin kemur til framkvæmda 18. febrúar 2016, nema ákvæði e-liðar í ORO.FTL.205 í III. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 83/2014, sem koma skulu til framkvæmda 17. febrúar 2017.

Innanríkisráðuneytinu, 28. janúar 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2016