Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
849/2015

Nr. 849/2015 11. september 2015

AUGLÝSING
um deiliskipulagsmál í Akraneskaupstað.

Deiliskipulag Skógahverfis, 2. áfanga, Blómalundur 2-4.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti þann 8. september 2015 breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis, 2. áfanga, vegna parhúsalóðanna við Blómalund 2 og 4.
Í breytingunni felst að byggingarreitur færist 1,5 m innar í lóðina.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Akranesi, 11. september 2015.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 25. september 2015