Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 195/2017

Nr. 195/2017 3. mars 2017

REGLUR
um starfshætti ríkisstjórnar.

1. gr.

Ríkisstjórnarfundir.

Ríkisstjórnarfundir eru fundir allra ráðherra sem sæti eiga í ríkisstjórn Íslands. Ráðherrum er skylt að sækja ríkisstjórnarfundi nema réttmæt forföll hamli. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum, sbr. 4. mgr. 6. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Ráðherrar skulu ávarpa hver annan með embættis­heiti á ríkisstjórnarfundum.

Áður en ráðherra fer úr landi ber honum að tryggja að annar ráðherra geti veitt ráðuneyti hans forstöðu meðan dvalið er ytra. Tilkynna skal ritara ríkisstjórnarinnar skriflega um brottfarar- og komu­dag ráðherra og um staðgengil hans. Ritari færir fjarveru ráðherra og staðgöngu fyrir hann til bókar í fundargerð næsta fundar.

2. gr.

Mál sem bera skal upp í ríkisstjórn.

Ríkisstjórnarfundi skal halda um eftirfarandi mál, sbr. 1. og 2. mgr. 6. gr. laga um Stjórnarráð Íslands:

  1. Nýmæli í lögum, þ.e. lagafrumvörp sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi sem stjórnar­frumvörp, og önnur málefni sem bera á upp fyrir forseta Íslands til staðfestingar, þ.m.t. tillögur til þingsályktana.
  2. Mikilvæg stjórnarmálefni. Til mikilvægra stjórnarmálefna teljast t.d. reglugerðir og yfir­lýsingar sem taldar eru fela í sér mikilvæga stefnumörkun eða áherslubreytingar eða ef sýnt þykir að reglugerð eða yfirlýsing geti haft áhrif á útgjöld ríkissjóðs umfram fjárheimildir eða á efnahagsmál almennt. Til mikilvægra stjórnarmálefna teljast jafnframt m.a. upp­lýs­ingar um fundi sem ráðherrar eiga um mikilvæg málefni með aðilum úr stjórnkerfinu eða utan þess eða þegar þeim sem fulltrúum ríkisstjórnarinnar eru veittar mikilvægar upp­lýs­ingar eða kynnt mikilsverð málefni sem ástæða er til að ætla að eigi erindi við ríkis­stjórnina í heild sinni.
  3. Önnur mál sem ráðherrar óska eftir að bera upp í ríkisstjórn.

Þegar mál sem bera skal upp í ríkisstjórn varðar málefnasvið annars ráðuneytis skal það að jafnaði borið undir viðkomandi ráðuneyti á undirbúningsstigi áður en það kemur til umfjöllunar í ríkisstjórn.

3. gr.

Boðun ríkisstjórnarfunda.

Reglulegir ríkisstjórnarfundir skulu að jafnaði haldnir einu sinni í viku, á föstudögum. Reglulegir fundir hefjast stundvíslega kl. 9.30, nema annað sé ákveðið. Forsætisráðherra boðar ráðherra til fundar. Boða skal til reglulegs ríkisstjórnarfundar fyrir kl. 12, að jafnaði á mánudegi.

Forsætisráðherra getur boðað fundi á öðrum tímum eftir þörfum og aðrir ráðherrar geta jafnframt óskað eftir því við forsætisráðherra að boðað sé til fundar utan reglulegs fundartíma.

Ríkisstjórnarfundir skulu að jafnaði haldnir í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg eða í Ráðherra­bústaðnum við Tjarnargötu. Forsætisráðherra getur boðað til funda á öðrum stöðum.

4. gr.

Undirbúningur reglulegra ríkisstjórnarfunda.

Ráðherrar skulu senda forsætisráðherra tillögur um dagskrármál reglulegs ríkisstjórnarfundar, ásamt gögnum máls í gegnum fundarkerfi ríkisstjórnar, eigi síðar en kl. 15 á þriðjudegi fyrir fund. Mál sem tilkynnt er um eftir þann tíma verða sett á dagskrá næsta reglulega ríkisstjórnarfundar þar á eftir nema forsætisráðherra ákveði annað.

Tillögur um dagskrármál reglulegs ríkisstjórnarfundar, ásamt gögnum máls, skulu gerðar aðgengi­legar ráðherrum og ráðuneytisstjórum í fundarkerfi ríkisstjórnar fyrir kl. 10 á miðvikudegi fyrir fund.

Tillögur um dagskrármál skulu koma til umfjöllunar í ráðherranefnd um samræmingu mála ef tilefni þykir til og eftir atvikum á fundi ráðuneytisstjóra í Stjórnarráðinu, sbr. 5. mgr.

Endanleg dagskrá reglulegs ríkisstjórnarfundar, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra, skal send öllum ráðherrum að jafnaði fyrir kl. 16 á fimmtudegi, daginn fyrir ríkisstjórnarfund, ef um reglu­legan fundartíma er að ræða. Fyrirhuguð dagskrá ríkisstjórnarfunda og tillögur um dagskrár­mál eru trúnaðarmál og er óheimilt að upplýsa um þau nema með samþykki þess ráðherra sem málið stafar frá.

Undirbúningsferli reglulegra ríkisstjórnarfunda, sbr. 1.-4. mgr., skal eftir atvikum vera sem hér segir:

  1. Ríkisstjórnarfundur boðaður fyrir kl. 12 á mánudegi.
  2. Tillögur um dagskrármál sendar forsætisráðherra fyrir kl. 15 á þriðjudegi.
  3. Tillögur um dagskrármál gerðar aðgengilegar í fundarkerfi ríkisstjórnar fyrir kl. 10 á miðvikudegi.
  4. Tillögur um dagskrármál ræddar á fundi ráðuneytisstjóra, ef tilefni þykir til.
  5. Tillögur um dagskrármál teknar til umfjöllunar á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála, ef tilefni þykir til.
  6. Endanleg dagskrá ásamt lokaútgáfu málsskjala gerð aðgengileg í fundarkerfi ríkisstjórnar fyrir kl. 16 á fimmtudögum.
  7. Ríkisstjórnarfundur kl. 9.30 á föstudögum.

5. gr.

Opinber birting dagskrár ríkisstjórnar.

Dagskrá ríkisstjórnarfunda skal gerð opinber að fundi loknum, kynnt fjölmiðlum með tilkynningu og birt á vef Stjórnarráðs Íslands, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Sá ráðherra sem ber ábyrgð á dagskrármáli gerir nánari grein fyrir efnisatriðum þess samkvæmt nánari ákvörðun ríkis­stjórnarinnar, að eigin frumkvæði eða samkvæmt fyrirspurnum þar um. Heimilt er að undan­skilja dagskrármál birtingu ef þau varða málefni sem eru undanþegin upplýsingarétti almenn­ings samkvæmt upplýsingalögum, þegar umfjöllun ríkisstjórnar er ólokið, endanleg ákvörðun í máli liggur ekki fyrir eða þegar aðrar málefnalegar ástæður réttlæta að vikið sé frá megin­regl­unni um birtingu að mati ríkisstjórnarinnar. Um aðgang að gögnum ríkisstjórnar fer sam­kvæmt ákvæðum upplýsingalaga.

6. gr.

Gögn ríkisstjórnar.

Öllum málum sem ráðherrar bera upp í ríkisstjórn skal fylgja sérstakt minnisblað ráðherra til ríkis­stjórnar þar sem meginatriði máls eru rakin og helstu sjónarmið sem að baki liggja, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Ef ráðherra óskar eftir samþykki ríkisstjórnar skal setja fram í minnisblaði skýrt orðaða tillögu þar um. Forsætisráðuneytið veitir nánari leiðbeiningar um ritun minnisblaða sem leggja á fyrir ríkisstjórn. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt með sam­þykki forsætisráðherra að víkja frá skyldu til að leggja mál fram skriflega.

Minnisblöð, lagafrumvörp, þingsályktunartillögur, drög að reglugerðum, skýrslur og önnur gögn sem ráðherrar hyggjast leggja fram á ríkisstjórnarfundum í tengslum við tilkynnt dagskrármál, sbr. 1. mgr. 4. gr., skulu hafa borist forsætisráðuneytinu eigi síðar en kl. 15 daginn fyrir fund. Gögnin skulu gerð aðgengileg ráðherrum, ráðuneytisstjórum og riturum ráðherra, sem og öðrum starfs­mönnum ráðuneyta sem fengið hafa sérstaka heimild ráðherra til aðgangs, í sameiginlegu fundar­kerfi ríkisstjórnarinnar, að jafnaði eigi síðar en kl. 16 daginn fyrir ríkisstjórnarfund, ef um reglu­legan fundartíma er að ræða. Þegar sérstaklega stendur á, að mati ráðherra, er honum þó heimilt að undanskilja gögn máls eða hluta þeirra frá birtingu í sameiginlegu fundarkerfi ríkis­stjórnarinnar samkvæmt ákvæði þessu.

Við upphaf ríkisstjórnarfundar skulu ráðherrar afhenda ritara ríkisstjórnar minnisblöð og önnur gögn, sem þeir hyggjast leggja fyrir ríkisstjórn, í nægilega mörgum eintökum handa ráðherrum og ritara ríkisstjórnar. Ráðherra skal vekja athygli á því ef minnisblaði eða öðrum gögnum sem dreift er á ríkisstjórnarfundi hefur verið breytt frá því að þau voru birt í sameiginlegu fundarkerfi ríkis­stjórnarinnar eða ef ný gögn eru lögð fram. Komi í ljós misræmi á milli framlagðra gagna og gagna sem birt hafa verið í sameiginlegu fundarkerfi ríkisstjórnarinnar fyrir fund, gilda hin fram­lögðu gögn.

Trúnaðar- og þagnarskylda hvílir á ráðherrum og starfsmönnum ráðuneyta sem aðgang hafa að sameiginlegu fundarkerfi ríkisstjórnarinnar um öll gögn ríkisstjórnar nema ríkisstjórnin samþykki að aflétta trúnaði eða lög kveði á um annað.

7. gr.

Fundargerðir ríkisstjórnarfunda.

Forsætisráðherra felur starfsmanni forsætisráðuneytisins að gegna störfum ritara ríkisstjórnar, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Ritari ríkisstjórnar annast undirbúning ríkisstjórnarfunda í samvinnu við ritara forsætisráðherra og skráir fundargerðir.

Í fundargerðir ríkisstjórnar, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, skulu færðar niður­stöður, skýrt frá frásögnum og tilkynningum ráðherra auk þess sem greint skal frá umræðu­efni, ef ekki er á því formleg niðurstaða, og bókuð afstaða samkvæmt sérstakri ósk ráðherra. Ef afgreiðsla máls byggist á öðrum sjónarmiðum en þeim sem lýst er í minnisblaði ráðherra, sbr. 1. mgr. 5. gr., eða í öðrum framlögðum gögnum skal gera grein fyrir þeim í fundar­gerð.

Fundargerðir skulu staðfestar af forsætisráðherra og dreift til annarra ráðherra þegar staðfesting liggur fyrir, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Komi fram athugasemd við fundargerð frá ráðherra skal hún skráð í fundargerð næsta fundar.

Dagskrár, fundargerðir og öll gögn sem lögð eru fram á ríkisstjórnarfundum skulu varðveitt á pappír og rafrænu formi í málaskrá ríkisstjórnar.

Ritara ríkisstjórnar er heimilt að skýra ráðuneytisstjórum viðkomandi ráðuneyta frá ákvörðunum er varða þeirra ráðuneyti og senda þeim skriflega útdrætti úr fundargerðum samkvæmt eigin ákvörðun eða ósk viðkomandi ráðuneytisstjóra. Trúnaðar- og þagnarskylda hvílir á ráðu­neytis­stjórum og öðrum starfsmönnum ráðuneyta með sama hætti og á ráðherra.

8. gr.

Eftirfylgni með samþykktum ríkisstjórnar.

Ráðherra sem ber ábyrgð á máli, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, skal tryggja eftirfylgni með samþykkt ríkisstjórnar.

9. gr.

Stjórnarfrumvörp og stjórnartillögur. Samþykki þingflokka.

Samþykki ríkisstjórnar fyrir framlagningu stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, annarra en frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga, er að jafnaði skilyrt samþykki þingflokka sem eiga aðild að ríkisstjórn, nema ríkisstjórnin ákveði annað. Þingflokkar stjórnarflokkanna tilkynna viðkomandi ráðherra eða fulltrúa hans skriflega um afgreiðslu sína með afriti til ritara ríkis­stjórnarinnar. Ritari heldur skrá yfir tillögur ráðherra um þingmál ríkisstjórnarinnar og afdrif þeirra í þingflokkum hennar. Að öðru leyti fer um undirbúning stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna sam­kvæmt sérstökum samþykktum ríkisstjórnarinnar.

10. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 5. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands og samþykktar hafa verið í ríkisstjórn, öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglnanna falla úr gildi reglur nr. 292/2016, um starfshætti ríkisstjórnar.

Forsætisráðuneytinu, 3. mars 2017.

Bjarni Benediktsson.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. mars 2017