1. gr.
5. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:
- 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: Öryrkjar sem fá greidda óskerta tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins skulu greiða 25% af umsömdu heildarverði fyrir fyrstu 30 meðferðarskiptin á einu ári og 10% af umsömdu heildarverði fyrir meðferðir umfram 30 út árið. Sama gildir um aldraða sem fá greidda óskerta tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins í desember 2016.
- 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Öryrkjar sem fá greidda skerta tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins skulu greiða 25% af umsömdu heildarverði fyrir fyrstu 30 meðferðarskiptin á einu ári og 15% af umsömdu heildarverði fyrir meðferðir umfram 30 út árið. Sama gildir um aldraða sem fá greidda skerta tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins í desember 2016.
- 4. tölul. 1. mgr. orðast svo: Öryrkjar sem ekki fá greidda tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins skulu greiða 35% af umsömdu heildarverði fyrir fyrstu 30 meðferðarskiptin á einu ári og 25% af umsömdu heildarverði fyrir meðferðir umfram 30 út árið. Sama gildir um aldraða sem ekki fá greidda tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins í desember 2016.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 21. gr. og 3. tölul. 1. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, gildir frá 1. janúar 2017.
Velferðarráðuneytinu, 12. desember 2016.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Vilborg Ingólfsdóttir.
|