Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1178/2015

Nr. 1178/2015 9. desember 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1248/2014, um rannsóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi EES-gerðir:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 frá 20. október 2010 um rann­sóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi og um niðurfellingu á til­skipun 94/56/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 12. júní 2014, bls. 176.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2012/780/ESB frá 5. desember 2012 um aðgangsrétt að miðlægu evrópsku gagnasafni um öryggistilmæli og svör við þeim sem komið var á fót með 5. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 um rann­sóknir og forvarnir gegn slysum og flugatvikum í almenningsflugi og um niðurfellingu á til­skipun 94/56/EB. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 12. júní 2014, bls. 192.

2. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 40. gr. laga nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 9. desember 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2015