Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 581/2016

Nr. 581/2016 28. júní 2016

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, sbr. einnig auglýsingu nr. 600/2013, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsagnir Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endur­skoðuð eigi síðar en 1. júlí 2019: 

  1. Landsbankinn hf.
  2. Landsvirkjun sf.
  3. Orkusalan ehf. 

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 28. júní 2016.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. júní 2016