Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 186/2016

Nr. 186/2016 12. febrúar 2016

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 18. tölul., svohljóðandi:

18. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/604 um breytingu á I. og II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur vegna berkla í nautgripum í fyrirmyndum að heilbrigðisvottorðum BOV-X og BOV-Y fyrir dýr og dýraafurðir og færslurnar fyrir Ísrael, Nýja-Sjáland og Paragvæ í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem aðflutningur til Sambandsins á lifandi dýrum og nýju kjöti er leyfður.

 

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. febrúar 2016.

 

F.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

 

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 29. febrúar 2016