Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 930/2017

Nr. 930/2017 23. október 2017

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2281 frá 30. nóvember 2016, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur með tilliti til krafna varðandi visthönnun á vörum til lofthitunar, vörum til kælingar, vökvakælum fyrir vinnslukerfi með hátt úttakshitastig og hitaspírala.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 6p í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2017, frá 7. júlí 2017, um breytingu á II. viðauka (Tækni­legar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2281, frá 30. nóvember 2016, um fram­kvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB um ramma til að setja fram kröfur varðandi visthönnun að því er varðar orkutengdar vörur með tilliti til krafna varðandi vist­hönnun á vörum til lofthitunar, vörum til kælingar, vökvakælum fyrir vinnslukerfi með hátt úttaks­hitastig og hitaspírala.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2281 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 374.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. nóvember 2017