Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1251/2016

Nr. 1251/2016 23. desember 2016

REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2017 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhags­aðstoðar skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:

  1. Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 700.404 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 181.737 kr. á mánuði.
  3. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. laganna skal nema 181.737 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr. laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1228/2015, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2016 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

Velferðarráðuneytinu, 23. desember 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016