Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 6/2017

Nr. 6/2017 10. janúar 2017

AUGLÝSING
(V) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 641 frá 8. júlí 2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Vopnafjarðarhreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopnafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, skal skipt þannig: 35% úthlutaðs byggðakvóta skiptist jafnt milli báta undir 1.000 brúttó­tonnum, sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 65% byggða­kvótans skal skipt hlutfalls­lega til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var á Vopnafirði á tíma­bilinu 1. sept­ember 2015 til 31. ágúst 2016.

Ísafjarðarbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Ísafjarðar, Hnífsdals, Þingeyrar, Flateyrar og Suðureyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði a-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnu­skyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, eða frí­stunda­veiði­leyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
  b) Ákvæði c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2016.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. og 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal fyrst úthluta bátum með frístundaveiðileyfi, sbr a) lið, 1 þorsk­ígildis­tonni á bát, 30% af því sem eftir stendur skal skipt jafnt milli annara skipa, þó ekki meir í þorskígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum talið á fisk­veiði­árinu 2015/2016, afganginum skal skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botn­fisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildis­stuðla, í þorskígildum talið, sem landað var innan við­komandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
    Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélaginu af bátum sem ekki eru skráðir innan sveitar­félagsins á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla, sem telja á til byggðakvóta Ísafjarðar til vinnslu innan sveitarfélagsins, á tímabilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Stykkishólmur.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Stykkishólms með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Stykkishólmi og aðflutts botn­fisk­afla til vinnslu í Stykkis­hólmi í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan við­kom­andi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er eða fluttur til vinnslu í Stykkishólmi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr., hefur endurnýjað fiskiskip sitt til að stunda fiskveiðar á fiskveiðiárinu 2016/2017, þá getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun afla­marks færist áunnin réttindi hins eldra skips til hins nýja.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. janúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2017