Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 3. febrúar 2016 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga samþykkt tillögu að breytingum á deiliskipulagi golfvallar á Blikastaðanesi. Breytingarnar felast í því að lóð og byggingarreitur golfskála/íþróttamiðstöðvar eru færð til vesturs, skipulagssvæðið er stækkað til suðurs og þar gerð grein fyrir bílastæðum og aðkomugötu fyrir golfvöllinn. Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið tilskilda meðferð samkvæmt skipulagslögum og öðlast hún þegar gildi. Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 114/2016, sem fellur þar með úr gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 18. febrúar 2016,
Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.
|