Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 645/2015

Nr. 645/2015 30. júní 2015

AUGLÝSING
um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins „Höfuðborgarsvæðið 2040“.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 29. júní 2015 svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins „Höfuðborgarsvæðið 2040“ sem samþykkt var í svæðisskipulagsnefnd þann 1. júní 2015, sbr. bréf Skipulagsstofnunar til svæðisskipulagsstjóra frá 30. júní 2015. Niðurstaða svæðisskipulagsnefndar var auglýst 6. júní 2015.

Málsmeðferð var samkvæmt 23.-25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gildistöku svæðisskipulagsins „Höfuðborgarsvæðið 2040“ falla úr gildi svæðisskipulag höfuðborgar­svæðisins 2001-2024 sem var staðfest 20. desember 2002 og svæðisskipulag vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu sem var staðfest 5. febrúar 1999.

Skipulagsstofnun, 30. júní 2015.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.


B deild - Útgáfud.: 14. júlí 2015