Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 503/2016

Nr. 503/2016 29. apríl 2016

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015 í réttri númeraröð:

  1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/119 frá 28. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrar­­einingum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 1.4.
  2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/111 frá 28. janúar 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 2.4.

Ákvæði 2. mgr. 2. gr. hljóði svo:

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og upp­færslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóð­legra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2016