1. gr.
Gildissvið.
Gjaldskráin tekur til daggjalda fyrir þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dvalarrýmum, hjúkrunarrýmum og dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2016 og eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður, sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.
Færni- og heilsumatsnefnd metur þörf fyrir dvöl í dvalar- og hjúkrunarrýmum samkvæmt reglugerð, nú nr. 466/2012 um færni og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma.
Dagdvalarrými er stuðningsúrræði fyrir aldraða, sbr. lög nr. 125/1999 um málefni aldraðra.
Gjaldskráin kveður á um daggjöld skv. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. reglugerð nr. 145/2016 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna dvalar í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvalarrýmum á stofnunum sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2016 og sem eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
2. gr.
Almennt um daggjöld og greiðslu þeirra.
Daggjald er greitt mánaðarlega fyrirfram fyrir þjónustu í dvalar- og hjúkrunarrýmum á grundvelli áætlunar um nýtingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt. Daggjald fyrir þjónustu í dagdvalarrými er greitt eftir hvern almanaksmánuð og endanlegt uppgjör framkvæmt fyrir þjónustu í dvalar- og hjúkrunarrýmum.
Daggjald fyrir dvalar- og hjúkrunarrými skal greitt þrátt fyrir að einstaklingur fari af stofnun í stuttan tíma, svo sem til aðstandenda yfir helgi eða hátíðar, enda hafi heilbrigðisyfirvöld eða stofnunin ekki aukakostnað af dvölinni. Fari einstaklingur á sjúkrahús til skammtímainnlagnar skal greiða 70% af daggjaldi dvalar- og hjúkrunarrýma í allt að 45 daga. Við andlát einstaklings eða þegar hann flytur fyrir fullt og allt af stofnun skal greiða fullt daggjald dvalar- og hjúkrunarrýma í allt að sjö daga.
3. gr.
Dvalarkostnaður og daggjöld vegna þjónustu í dvalarrýmum.
Tilgreindur fjöldi dvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur til.
Þjónusta í dvalarrými er sólarhringsþjónusta og er daggjald greitt fyrir hana þá sólarhringa sem sjúkratryggður nýtur hennar. Þjónustuna skal þó veita sem jafnast yfir árið.
Innifalið í daggjöldum dvalarrýma og dvalarkostnaði heimilismanna er hvers konar þjónusta sem einstaklingum er látin í té á stofnunum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.
Daggjöld fyrir þjónustu í dvalarrýmum eru sem hér segir, frá og með 1. janúar 2016:
|
Fjöldi dvalarrýma |
Daggjald |
|
Blesastaðir, Skeiðum |
6 |
12.636 kr. |
|
Hrafnista, Reykjavík |
18 |
12.636 kr. |
|
Hrafnista, Reykjavík, sérhæft dvalarrými |
3 |
15.483 kr. |
1) |
Hrafnista, Hafnarfirði |
66 |
12.636 kr. |
2) |
Kumbaravogur, Stokkseyri |
4 |
12.636 kr. |
|
Grund, Reykjavík |
11 |
12.636 kr. |
|
Skógarbær, hjúkrunarheimili |
1 |
12.636 kr. |
|
Dalbær, Dalvík |
15 |
12.636 kr. |
|
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði |
50 |
12.636 kr. |
|
Sólvellir, Eyrarbakka |
13 |
12.636 kr. |
|
Brákarhlíð, Borgarnesi |
17 |
12.636 kr. |
|
Fellaskjól, Grundarfirði |
2 |
12.636 kr. |
|
Uppsalir, Fáskrúðsfirði |
10 |
12.636 kr. |
|
Grenilundur, Grenivík |
3 |
12.636 kr. |
|
Hornbrekka, Ólafsfirði |
11 |
12.636 kr. |
|
Hvammur, Húsavík |
17 |
12.636 kr. |
|
Sæborg, Skagaströnd |
1 |
12.636 kr. |
|
Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð |
16 |
12.636 kr. |
3) |
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Hornafirði |
6 |
12.636 kr. |
|
Hjallatún, Vík |
5 |
12.636 kr. |
|
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum |
8 |
12.636 kr. |
|
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli |
7 |
12.636 kr. |
|
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri |
2 |
12.636 kr. |
|
Lundur, Hellu |
1 |
12.636 kr. |
|
Barmahlíð, Reykhólum |
2 |
12.636 kr. |
|
Dvalarh. aldraðra, Stykkishólmi |
5 |
12.636 kr. |
|
Höfði, Akranesi |
19 |
12.636 kr. |
|
Jaðar, Ólafsvík |
5 |
12.636 kr. |
|
Silfurtún, Búðardal |
2 |
12.636 kr. |
|
Naust, Þórshöfn |
3 |
12.636 kr. |
|
Fell, dvalarheimili, Reykjavík |
21 |
12.636 kr. |
|
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi, hjúkrunarsvið |
9 |
12.636 kr. |
|
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki, hjúkrunarsvið |
9 |
12.636 kr. |
|
|
368 |
|
4) |
Nánari skýringar:
1) |
Sérhæfð dvalarrými á Hrafnistu í Reykjavík eru bundin við ákveðna einstaklinga (áður Vesturhlíð). |
2) |
Hrafnista í Reykjavík er með 56 dvalarrými frá 1. febrúar 2016. |
3) |
Öldrunarstofnun Akureyrar er með 12 dvalarrými frá og með 1. febrúar 2016. |
4) |
Heildarfjöldi dvalarrýma er alls 354 frá og með 1. febrúar 2016. |
4. gr.
Daggjöld vegna þjónustu í hjúkrunarrýmum.
Tilgreindur fjöldi hjúkrunarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur til.
Þjónusta í hjúkrunarrými er sólarhringsþjónusta og er daggjald greitt fyrir hana þá sólarhringa sem sjúkratryggður nýtur hennar. Þjónustuna skal þó veita sem jafnast yfir árið.
Daggjöld vegna þjónustu í hjúkrunarrými standa undir dvalarkostnaði og kostnaði vegna hjúkrunarþjónustu. Dvalarkostnaður er jafnhár almennu daggjaldi fyrir dvalarrými (12.636 kr.). Kostnaður vegna hjúkrunarþjónustu er breytilegur og byggir á RUG-III hjúkrunarþyngdarflokkun og skráningu veitenda þjónustunnar í RAI-gagnagrunn í umsjá embættis landlæknis.
Innifalin í daggjöldum hjúkrunarrýma er hvers konar þjónusta sem einstaklingum er látin í té á stofnunum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.
Daggjöld fyrir hjúkrunarrými skulu vera sem hér segir frá 1. janúar 2016:
|
Fjöldi hjúkrunarrýma |
Hjúkrunarþjónusta |
Daggjald þar af dvalarkostnaður 12.636 kr. |
|
Grenilundur, Grenivík |
6 |
14.302 kr. |
26.938 kr. |
|
Hvammur, Húsavík |
27 |
14.167 kr. |
26.803 kr. |
|
Blesastaðir, Skeiðum |
5 |
14.401 kr. |
27.037 kr. |
|
Sólvellir, Eyrarbakka |
5 |
13.774 kr. |
26.410 kr. |
|
Roðasalir, Kópavogi |
11 |
12.837 kr. |
25.473 kr. |
|
Sæborg, Skagaströnd |
7 |
12.924 kr. |
25.560 kr. |
|
Silfurtún, Búðardal |
10 |
13.645 kr. |
26.281 kr. |
|
Hrafnista, Hlévangur, Reykjanesbæ |
30 |
16.769 kr. |
29.405 kr. |
|
Sundabúð, Vopnafirði |
10 |
13.936 kr. |
26.572 kr. |
|
Sundabúð, Vopnafirði, sjúkrarými |
1 |
18.696 kr. |
27.496 kr. |
|
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli |
23 |
20.461 kr. |
33.097 kr. |
|
Hamrar, Mosfellsbæ |
30 |
16.089 kr. |
28.725 kr. |
|
Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi |
44 |
15.491 kr. |
28.127 kr. |
|
Mörk, Reykjavík |
93 |
14.402 kr. |
27.038 kr. |
|
Mörk, Reykjavík, sérrými |
20 |
17.954 kr. |
30.590 kr. |
|
Hrafnista, Reykjavík |
197 |
14.553 kr. |
27.189 kr. |
|
Hrafnista, Hafnarfirði |
158 |
13.764 kr. |
26.400 kr. |
1) |
Hrafnista, Nesvellir, Reykjanesbæ |
60 |
15.609 kr. |
28.245 kr. |
|
Grund, Reykjavík |
181 |
14.122 kr. |
26.758 kr. |
|
Sunnuhlíð, Kópavogi |
66 |
14.398 kr. |
27.034 kr. |
|
Sunnuhlíð, Kópavogi, endurhæfing |
4 |
22.143 kr. |
34.779 kr. |
|
Hjúkrunarheimilið Skjól |
107 |
14.410 kr. |
27.046 kr. |
|
Eir, Reykjavík |
161 |
14.655 kr. |
27.291 kr. |
2) |
Eir, Reykjavík, endurhæfing |
12 |
23.299 kr. |
35.935 kr. |
|
Skógarbær, Reykjavík |
70 |
14.115 kr. |
26.751 kr. |
|
Skógarbær, Reykjavík, endurhæfing |
11 |
22.883 kr. |
35.519 kr. |
|
Droplaugarstaðir, Reykjavík |
82 |
14.450 kr. |
27.086 kr. |
|
Hjúkrunarheimilið Lundur, Hellu |
30 |
14.604 kr. |
27.240 kr. |
|
Hulduhlíð, Eskifirði |
20 |
14.230 kr. |
26.866 kr. |
|
Hornbrekka, Ólafsfirði |
18 |
14.516 kr. |
27.152 kr. |
|
Naust, Þórshöfn |
10 |
12.996 kr. |
25.632 kr. |
|
Seljahlíð, Reykjavík |
20 |
15.386 kr. |
28.022 kr. |
|
Höfði, Akranesi |
56 |
13.267 kr. |
25.903 kr. |
|
Brákarhlíð, Borgarnesi |
35 |
15.490 kr. |
28.126 kr. |
|
Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi |
13 |
14.158 kr. |
26.794 kr. |
|
Fellaskjól, Grundarfirði |
10 |
13.354 kr. |
25.990 kr. |
|
Jaðar, Ólafsvík |
12 |
13.768 kr. |
26.404 kr. |
|
Fellsendi, Búðardal |
26 |
13.704 kr. |
26.340 kr. |
|
Barmahlíð, Reykhólum |
14 |
14.002 kr. |
26.638 kr. |
|
Dalbær, Dalvík |
25 |
14.009 kr. |
26.645 kr. |
|
Öldrunarstofnun Akureyrar |
169 |
14.277 kr. |
26.913 kr. |
3) |
Uppsalir, Fáskrúðsfirði |
15 |
14.654 kr. |
27.290 kr. |
|
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Hornafirði |
24 |
14.111 kr. |
26.747 kr. |
|
Klausturhólar |
16 |
12.927 kr. |
25.563 kr. |
|
Hjallatún, Vík |
12,5 |
14.061 kr. |
26.697 kr. |
|
Kumbaravogur, Stokkseyri |
30 |
14.086 kr. |
26.722 kr. |
|
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði |
38 |
13.220 kr. |
25.856 kr. |
|
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði, geðrými |
39 |
6.343 kr. |
18.979 kr. |
|
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum |
29 |
13.856 kr. |
26.492 kr. |
|
Ísafold, Garðabæ |
60 |
15.027 kr. |
27.663 kr. |
|
|
2.152,5 |
|
|
4) |
Nánari skýringar:
1) |
Hrafnista, Hafnarfirði er með 163 hjúkrunarrými frá og með 1. febrúar 2016. |
2) |
Eir, Reykjavík er með 15 skilgreind endurhæfingarrými frá og með 1. febrúar 2016. |
3) |
Öldrunarstofnun Akureyrar er með 171 hjúkrunarrými frá og með 1. febrúar 2016. |
4) |
Heildarfjöldi rýma er því alls 2.162,5 frá og með 1. febrúar 2016. |
Greiða skal sérstak álag, 1.847 kr. á dag, til viðbótar við daggjald vegna þjónustu í hjúkrunarrými fyrir einstaklinga sem eru með langvinna nýrnasjúkdóma og þurfa blóðskilun á sjúkrahúsi. Sjúkrahúsið greiðir kostnað vegna lyfjagjafar eins og fyrir aðra einstaklinga í blóðskilun.
5. gr.
Daggjöld vegna þjónustu í dagdvalarrýmum.
Tilgreindur fjöldi dagdvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur til. Miðað er við að þjónusta í dagdvalarrými sé í boði 250 daga ársins og í samræmi við áætlun sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt.
Miðað er við að ein koma í dagdvalarrými vari í a.m.k. 6 klst. á dag. Innifalið í daggjöldum dagdvalarrýma er nauðsynlegur flutningskostnaður og hvers konar þjónusta sem látin er í té á stofnunum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.
Daggjöld fyrir dagdvalarrými skulu vera sem hér segir frá 1. janúar 2016:
Tegund dagdvalar |
|
Fjöldi dagdvalarrýma |
Daggjald |
Almenn dagdvöl |
Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi |
30 |
6.492 kr. |
Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu |
Hrafnista, Reykjavík |
30 |
17.702 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hrafnista, Hafnarfirði |
26 |
6.492 kr. |
Dagdvöl með endurhæfingu |
Eir, Reykjavík |
42 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dalbær, Dalvík |
14 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði |
5 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Brákarhlíð, Borgarnesi |
4 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Fellaskjól, Grundarfirði |
1 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Lagarás, Egilsstöðum |
5 |
6.492 kr. |
Dagdvöl með endurhæfingu |
Lagarás, Egilsstöðum |
3 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Uppsalir, Fáskrúðsfirði |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Ísafold, Garðabæ |
16 |
6.492 kr. |
Dagdvöl með endurhæfingu |
Roðasalir, Kópavogi |
20 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Sólvangur |
8 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hornbrekka, Ólafsfirði |
6 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hvammur, Húsavík |
23 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð |
20 |
6.492 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð |
15 |
14.170 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Öldrunarstofnun Akureyrar, Eyjarfjarðarsveit |
1 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Hornafirði |
7 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hjallatún, Vík |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum |
10 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri |
1 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Lundur, Hellu |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Barmahlíð, Reykhólum |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Höfði, Akranesi |
20 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Jaðar, Ólafsvík |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Naust, Þórshöfn |
4 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Sunnuhlíð, Kópavogi |
14 |
6.492 kr. |
Dagdvöl með endurhæfingu |
Sunnuhlíð, Kópavogi |
6 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Djúpavogi |
4 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík |
40 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ |
15 |
6.492 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ |
11 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hlaðhamrar, dagdvöl, Mosfellsbæ |
9 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl Seltjarnarness |
9 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Skagafirði |
11 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Árborg, dagdvöl, Selfossi |
11 |
6.492 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Árborg, dagdvöl, Selfossi |
10 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Þorlákshöfn |
8 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Grindavík |
5 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Hlíf, dagdvöl, Ísafirði |
8 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Sunnuhlíð, dagdvöl, Suðureyri |
5 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Hvammstanga |
5 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvöl aldraðra, Siglufirði |
7 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi |
2 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Dagdvalarheimilið Breiðdalsvík |
5 |
6.492 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Hlíðarbær, dagdvöl, Reykjavík |
22 |
14.170 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Vitatorg, dagdvöl, Reykjavík |
18 |
14.170 kr. |
Almenn sérhæfð dagdvöl |
MS-setrið, dagdvöl, Reykjavík |
40 |
12.950 kr. |
Almenn sérhæfð dagdvöl |
Múlabær, dagdvöl, Reykjavík |
52 |
9.249 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Fríðuhús, dagdvöl, Reykjavík |
17 |
14.170 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Drafnarhús, dagdvöl, Hafnarfirði |
20 |
14.170 kr. |
Dagdvöl fyrir heilabilaða |
Maríuhús, dagdvöl, Reykjavík |
20 |
14.170 kr. |
Almenn dagdvöl |
Heilbrigðisstofnun Austurlands, Neskaupstað |
1 |
6.492 kr. |
Almenn dagdvöl |
Heilbrigðisstofnun Austurlands, Seyðisfirði |
2 |
6.492 kr. |
|
|
702 |
|
6. gr.
Húsnæðisdaggjald.
Húsnæðisdaggjald fyrir hjúkrunarrými mætir kostnaði vegna fasteignagjalda, trygginga, viðhalds, eftirlits og umsýslu húsnæðis. Húsnæðisdaggjald er kr. 1.898 á dag fyrir að hámarki 60 fermetra hjúkrunarrými að meðtöldu sameiginlegu rými.
Húsnæðisdaggjald fyrir dvalar- og dagdvalarrými mætir viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs þeirra. Húsnæðisdaggjald er kr. 656 á dag fyrir að hámarki 60 fermetra dvalarrými og kr. 328 fyrir að hámarki 30 fermetra dagdvalarrými.
Húsnæðisdaggjaldið fyrir hjúkrunarrými, dvalarrými og dagdvalarrými hlutfallast í samræmi við stærð rýmisins og reiknast aldrei á stærra rými en hámarkið segir til um.
7. gr.
Greiðsluþátttaka.
Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dvalarkostnaðar fer samkvæmt 21., 22., 23., 24. og 26. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dagdvalar fer samkvæmt 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
8. gr.
Rafræn samskipti og reikningsupplýsingar.
Reikningar skulu uppfylla skilyrði laga og reglna á hverjum tíma. Þeir skulu vera á því formi sem Sjúkratryggingar Íslands ákveða. Reikningar vegna kostnaðar við veitta þjónustu skulu sendir Sjúkratryggingum Íslands mánaðarlega.
Við sendingu rafrænna reikningsupplýsinga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt. Rafræn samskipti aðila og varðveisla gagna skulu fara eftir ákvæðum laga um bókhald nr. 145/1994. Rekstraraðilar bera kostnað af innskráningu upplýsinga, en ekki vegna reksturs og viðhalds RAI-gagnagrunns og þjónustukerfa Sjúkratrygginga Íslands.
Ef ekki reynist unnt að ákvarða rétt til greiðslu eða fjárhæð hennar vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að fresta greiðslu þar til úr því er bætt. Stofnunin skal gera viðkomandi heimili viðvart ef til frestunar kemur, leiðbeina um hvaða upplýsingar skortir og skora á það að veita þær innan viðhlítandi frests.
9. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sbr. síðari breytingar, og reglugerðar nr. 145/2016, og tekur til þjónustu sem veitt er eftir 1. janúar 2016. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2016.
Sjúkratryggingum Íslands, 18. febrúar 2016.
Steingrímur Ari Arason.
Ingibjörg K. Þorsteinsdóttir.
|