1. gr. Orðin „sem þarf að varðveita vegna fyrirliggjandi réttarágreinings, sbr. 7. tl. 9. gr. laga nr. 77/2000“, í 2. mgr. 7. gr., falli brott. Í stað þeirra komi orðin: sem nauðsynlegar eru til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. 2. gr. Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 5. mgr. 37. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, sbr. lög nr. 81/2002, öðlast þegar gildi. Persónuvernd, 17. september 2014. Björg Thorarensen. Hjördís Stefánsdóttir. |