Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Hulduhólasvæði. Í stað einbýlishúsalóða sunnan Bröttuhlíðar er nú gert ráð fyrir lóðum fyrir tveggja hæða parhús P2H með fjórum íbúðum auk einnar, einnar hæðar raðhúsalengju R1H með fjórum íbúðum.
Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 21. september 2017,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|