Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 33/2016

Nr. 33/2016 11. maí 2016

LÖG
um breyting á tollalögum, nr. 88/2005, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (gjalddagar aðflutningsgjalda).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 

I. KAFLI

Breyt­ing á tolla­lög­um, nr. 88/2005, með síðari breyt­ing­um.

1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði 122. gr. skal fyrirkomulag gjalddaga aðflutningsgjalda, hjá aðilum sem njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, vegna uppgjörstímabilanna mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október og nóvember og desember á árinu 2016 vera sem hér segir:

  1. Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 15. degi næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
  2. Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

II. KAFLI

Breyt­ing á lög­um nr. 50/1988, um virðis­auka­skatt, með síðari breyt­ing­um.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði VII. kafla og 7. mgr. 20. gr. er á gjalddaga virðisaukaskatts vegna uppgjörs­tímabilanna mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október og nóvember og desember á árinu 2016, sbr. 1. mgr. 24. gr., heimilt að færa til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu allan virðisaukaskatt vegna viðkomandi uppgjörstímabils þótt einungis hluta af gjaldföllnum virðis­auka­skatti hafi á þeim tíma verið skilað, sbr. ákvæði til bráðabirgða XIV í tollalögum, nr. 88/2005.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 11. maí 2016.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 12. maí 2016