Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 554/2016

Nr. 554/2016 6. júní 2016

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 273/2004 um forefni ávana- og fíkniefna.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), sem vísað er til í lið 15x í XIII. kafla II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2016 frá 18. mars 2016, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013 frá 20. nóvember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 273/2004 um forefni ávana- og fíkniefna.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016 frá 31. mars 2016, bls. 421.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 50. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. júní 2016