Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1152/2016

Nr. 1152/2016 30. nóvember 2016

GJALDSKRÁ
fráveitu Dalvíkurbyggðar.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalvíkurbyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð nr. 1090/2016.

2. gr.

Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins og skal það vera eftirfarandi:

  a) Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 15.315,35 kr. pr. íbúð og 319,60 kr. pr. fer­metra húss.
  b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 35.288,36 kr. pr. eign og 319,60 kr. pr. fermetra húss.
  c) Álagning skv. a- og b-liðum skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægri en 0,25% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum.

Fráveitugjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.

3. gr.

Sveitarfélagið annast tæmingu rotþróa í eigu fasteignaeigenda í Dalvíkurbyggð og innheimtir sérstakt rotþróargjald til að standa straum af kostnaði við hreinsun, urðun seyru og umsjón með verkinu.

Árlegt rotþróargjald sem lagt er á hverja íbúð, þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár, er 11.872,90 kr. pr. losun. Að auki er greitt fast gjald 15.315,35 kr. á hverja íbúð, til að standa straum af kostnaði vegna niðursetningar á rotþrónni. Af öðru húsnæði sem fjallað er um í 2. gr. tl. b, greiðist sambærileg rotþróargjöld þ.e. fast gjald og rotþróargjald.

Fyrir aukalosun, að beiðni eiganda, greiðist skv. gjaldskrá losunaraðila hverju sinni.

Rotþróargjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.

4. gr.

Gjalddagar fráveitu- og rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 22. nóvember 2016, staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi 1. janúar og verða beitt við álagningu gjalda á árinu 2017. Jafnframt fellur gjaldskrá um fráveitugjald í Dalvíkurbyggð nr. 1055/2015 úr gildi.

Dalvíkurbyggð, 30. nóvember 2016.

Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2016