Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1231/2015

Nr. 1231/2015 21. desember 2015

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 460/2013, um vasapeninga og dagpeninga vegna dvalar á stofnun.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um ráðstöfunarfé og dagpeninga lífeyrisþega.

2. gr.

Hvar sem orðið „vasapeningar“, í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Ráðstöfunarfé.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:

  1. Í stað „53.354 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 58.529 kr.
  2. Í stað „984.997 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 1.080.535 kr.

4. gr.

Í stað „2.827 kr.“ í 6. gr. kemur: 3.101 kr.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1218/2014, um breytingu á reglugerð nr. 460/2013, um vasapeninga og dagpeninga vegna dvalar lífeyrisþega á stofnun.

Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2015