Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1157/2017

Nr. 1157/2017 22. desember 2017

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2018.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörð­unum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2018 verður 22,5% af tekjuskattsstofni að 10.724.553 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 10.724.554 kr. Meðalútsvar á árinu 2018 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2018 verður því 36,94% af tekjuskattsstofni að 10.724.553 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 10.724.554 kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2018 vera 646.739 krónur, eða 53.895 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2017.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2017