Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 346/2015

Nr. 346/2015 27. mars 2015
AUGLÝSING
um deiliskipulagsmál í Akraneskaupstað.

Deiliskipulag Smiðjuvalla.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti þann 10. mars 2015 breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla, vegna lóðanna við Kalmansvelli 6 og Smiðjuvelli 3.
Í breytingunni felst að skipta lóð Smiðjuvalla 3 og stækka lóð við Kalmansvelli 6, nýtingar­hlutfall lóðanna er óbreytt eða 0,5.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 42. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið tekur þegar gildi.

Akranesi, 27. mars 2015.

Hildur Bjarnadóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2015