Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1145/2013

Nr. 1145/2013 23. desember 2013
REGLUGERÐ
um togveiðar á kolmunna 2014.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu Færeyja og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði­nefndarinnar (NEAFC).

Fyrir tímabilið 1. janúar 2014 til 31. desember 2014 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:

A

B

C

Lestir

Lestir

Lestir

153.985

7.391

146.594

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (4,8%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% yfir aflamark í kolmunna á árinu 2014 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2015. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2014 til ársins 2015.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar, sbr. reglugerð nr. 557/2007, með síðari breytingum, um afladagbækur. Þar skula m.a. koma fram upplýsingar um veiðisvæði, veiðitíma og afla í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,14.

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar Eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði­nefndarinnar, með síðari breytingum, og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan kolmunnaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram kolmunnaafli skipsins sundurliðaður eftir veiðisvæðum, sbr. 1. mgr. 1. gr.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til kolmunnaveiða vegna brota á reglugerð þessari.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2014. Jafnframt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 1193/2012, um togveiðar á kolmunna 2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2013