Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 214/2013

Nr. 214/2013 1. mars 2013
REGLUR
um köfun í þjóðgarðinum á Þingvöllum (yfirborðs- og djúpköfun).

1. gr.

Skilyrði fyrir köfun.

Allir sem hyggjast kafa innan þjóðgarðsins á Þingvöllum verða að tilkynna komu sína til starfs­manns þjóðgarðsins og fá til þess leyfi, áður en kafað er. Leyfi til köfunar er veitt að upp­fylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Viðkomandi hafi kynnt sér fyrirmæli fyrir kafara við köfun og yfirborðsköfun í þjóð­garðinum á Þingvöllum sem gefin eru út af Siglingastofnun.
  2. Viðkomandi hafi undirritað yfirlýsingu um að honum sé ljóst að kafað er á eigin ábyrgð.
  3. Viðkomandi hafi greitt gestagjald fyrir köfun samkvæmt gildandi gjaldskrá þjóð­garðs­ins á hverjum tíma.

2. gr.

Reglur sem köfurum ber að fylgja.

Þeim sem kafa eða yfirborðskafa í þjóðgarðinum ber að fylgja ákvæðum gildandi laga, reglu­gerða og reglna um köfun í hvívetna, þ.m.t. ákvæðum laga um köfun nr. 31/1996, ákvæðum reglugerðar um köfun nr. 535/2001 og fyrirmælum Siglingastofnunar nr. 165/2013 vegna köfunar og yfirborðsköfunar í þjóðgarðinum á Þingvöllum, dags. 12. febrúar 2013.

Köfurum ber ennfremur að fylgja ákvæðum annarra laga, reglugerða og reglna sem gilda innan þjóðgarðsins, s.s. laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum nr. 47/2004, reglugerðar um þjóð­garðinn á Þingvöllum, verndun hans og meðferð nr. 848/2005, laga um verndun Þing­valla­vatns og vatnasviðs þess nr. 85/2005 og almennum umgengnisreglum.

3. gr.

Viðbrögð við brotum.

Starfsmenn þjóðgarðsins geta vísað þeim frá köfun, er brjóta gegn reglum þessum og getur þjóðgarðsvörður sett viðkomandi í tímabundið bann við köfun innan þjóðgarðsins ef sakir eru miklar eða endurteknar.

Brot á reglum þessum skulu kærð til lögreglu ef þurfa þykir.

4. gr.

Viðurlög.

Brot á reglum þessum varða sektum og fangelsi ef sakir eru miklar, sbr. 9. gr. laga nr. 47/2004 um þjóðgarðinn á Þingvöllum.

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglur þessar eru samdar og samþykktar af Þingvallanefnd á grundvelli 3. gr. laga nr. 47/2004 um þjóðgarðinn á Þingvöllum, sbr. e. lið 6. gr. reglugerðar nr. 848/2005 um þjóð­garðinn á Þingvöllum, verndun hans og meðferð. Reglurnar öðlast gildi við birtingu.

F.h. Þingvallanefndar, 1. mars 2013,

Áflaheiður Ingadóttir formaður.

B deild - Útgáfud.: 5. mars 2013